Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3657
Bretar beittu hryðjuverkalögum til að frysta eignir á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi. Icesave-deilan dregur nafn sitt af reikningunum og er deilan um innstæður þeirra. Eftir að Landsbankinn féll hefur verið deilt um hver ber ábyrgð á innstæðum reikninganna. Deilan nær lengra en til Bretlands því aðildarríki Evrópusambandsins drógust inn í málið þegar íslenska ríkisstjórnin bar fyrir sig að lagalegur ágreiningur væri til staðar. Stjórnvöld voru ekki tilbúin að fallast á að Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta bæri að ábyrgjast innstæður umfram þá upphæð sem væri í sjóðnum. Íslendingar sætta sig heldur ekki við beitingu hryðjuverkalaganna en í þessari ritgerð er komist að þeirri niðurstöðu að íslensku „neyðarlögin“ voru ein af ástæðum þess að Bretar beittu hryðjuverkalögunum.
Farið er yfir deiluna í sögulegu samhengi og stuðst er meðal annars við umræður á Alþingi, neðri málstofu og lávarðadeild breska þingsins. Einnig er mikið stuðst við efni úr fjölmiðlum.
Ekki er hægt að svara öllum spurningum sem vakna varðandi deiluna þar sem hún er enn óleyst og ný gögn eru alltaf að bætast við.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Briet_Konradsdottir_fixed.pdf | 542.56 kB | Opinn | Heildartexti án fylgiskjala | Skoða/Opna | |
Briet_Fylgiskjal1.JPG | 90.25 kB | Opinn | Fylgiskjal 1 | JPG | Skoða/Opna |
Briet_Fylgiskjal2_fixed.pdf | 139.87 kB | Opinn | Fylgiskjal 2 | Skoða/Opna | |
Briet_Fylgiskjal3_fixed.pdf | 56 kB | Opinn | Fylgiskjal 3 | Skoða/Opna | |
Briet_Fylgiskjal4_fixed.pdf | 17.39 kB | Opinn | Fylgiskjal 4 | Skoða/Opna | |
Briet_Fylgiskjal5_fixed.pdf | 1.52 MB | Opinn | Fylgiskjal 5 | Skoða/Opna |