Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/367
Auglýsingar eru hluti af daglegu lífi í okkar samfélagi. Í þessari ritgerð verður fjallað
um kynjaímyndir í sjónvarpsauglýsingum. Fylgst var með sjónvarpsauglýsingum yfir
vikutímabil í lok febrúar 2006 og þær svo greindar. Aðalþættir greiningarinnar snúa
að því hvort kynið sé sýnilegra og hvaða hlutverki það gegnir í auglýsingunni, auk
þess sem kyn þula í auglýsingum er greint.
Settar verða fram skilgreiningar á staðalímyndum og kynjaímyndum ásamt því
að fjallað verður sérstaklega um auglýsingar, þær skoðaðar í sögulegu ljósi og sagt frá
áhrifamætti þeirra. Viðtöl voru tekin við kvikmyndagerðarmann sem hefur áralanga
reynslu í auglýsingagerð og hans sjónarmið kynnt.
Alls voru 137 auglýsingar greindar, sumar hverjar mjög ítarlega og þeim skipt
niður í flokka. Reynt verður að gefa sem skýrasta mynd af sjónvarpsauglýsingamarkaðnum með þessum greiningum og niðurstöður kynntar.
Markmið ritgerðarinnar er að sýna hvernig kynin birtast í sjónvarpsauglýsingum og
svara því hvort jafnrétti kynjanna ríki í þeim eða hvort ólík viðhorf til kynjanna birtast
í þeim.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
kynjaimyndir.pdf | 340.94 kB | Opinn | Kynjaímyndir í sjónvarpsauglýsingum - heild | Skoða/Opna |