is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3682

Titill: 
  • Tengsl símenntunar, raunfærni og árangursstjórnunar í stjórnsýslu Hafnarfjarðar
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerðin fjallar í megindráttum um tengslin á milli raunfærni starfsmanna á
    leikskólanum Norðurbergi í Hafnarfirði og símenntunaráætlana sem gerðar eru og
    sniðnar að meginþemum í uppeldisstarfi skólans. Í því sambandi er kannað mat
    stjórnenda, starfsmanna og foreldra á færni starfsmanna til að skila fullnægjandi
    mótun barnanna á sviði umhverfismenntar og samskiptafærni. Þekking barnanna á
    umhverfismennt og samskiptafærni var einnig könnuð. Jafnframt er greint samspil
    símenntunaráætlana, raunfærni starfsmanna og samhæfðs árangursmats (Balanced
    scorecard) sem Hafnarfjarðarbær innleiddi. Loks er gerð grein fyrir inntaki og
    sögulegri þróun lykilhugtaka.
    Þrjár rannsóknarspurningar voru settar fram og þeim svarað á grundvelli
    fyrirliggjandi niðurstaðna rannsókna. Aðferðirnar voru hvort tveggja eigindlegar og
    megindlegar. Rætt var ítarlega við leikskóla- og aðstoðarleikskólastjóra, auk
    deildarstjóra um stefnumótun, starfsþjálfun og símenntunaráætlanir leikskólans.
    Skriflegar spurningakannanir voru lagðar fyrir starfsmenn og foreldra en rætt
    einslega við hóp barna á mismunandi leikskólaaldri.
    Niðurstöður rannsóknarinnar voru almennt jákvæðar. Að mati starfsmanna eru
    umtalsverð tengsl milli símenntunaráætlana og óformlegs náms annars vegar og
    faglegrar þróunar og þjálfunar hins vegar. Tæplega 90% foreldra telja raunfærni
    starfsmanna vera mikla eða mjög mikla. Þessi mælanlega raunfærni endurspeglast í
    þeim uppeldislega árangri sem starfsmenn hafa skilað í mótun barnanna. Þau hafa í
    yfirgnæfandi mæli þekkingu á umhverfismennt og ráða yfir samskiptafærni og skilja
    í stórum dráttum um hvað sú félagsfærni snýst.

Samþykkt: 
  • 25.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3682


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
09_fixed.pdf1.72 MBLokaðurHeildartextiPDF