Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3699
Útinám í stærðfræði er lokaverkefni til B.Ed gráðu á Menntavísindasviði við Háskóla
Íslands vorið 2009. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar greinargerð og hins vegar
verkefnahefti með stærðfræðiverkefnum tengdum útinámi. Greinargerðin er fræðileg
dýpkun á verkefnunum, innihaldi þeirra sem og tengingu þeirra við markmið
aðalnámskrár grunnskóla. Verkefnaheftið inniheldur þrjátíu verkefni sem nýtast eiga
stærðfræðikennurum á unglingastigi í Hagaskóla. Meginmarkmið verkefnaheftisins er
að nemendur á unglingastigi öðlist aukin stærðfræðiskilning og þjálfist í sjálfstæðum
vinnubrögðum og beitingu fjölbreyttra aðferða. Það á jafnframt að veita kennurum
innblástur til að fara oftar út með nemendum og tengja stærðfræðina við daglegt líf.
Lykilorð: Útinám.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Útinám í stærðfræði_greinagerð_fixed.pdf | 184.9 kB | Lokaður | Greinargerð | ||
verkefnaheftikennara_fixed.pdf | 523.73 kB | Lokaður | Verkefnahefti |