is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/369

Titill: 
  • Fjölskylda samtímans : fjölskylduhagir 10. bekkinga á Íslandi árið 2006 og tengsl þeirra við nánustu aðstandendur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Geðtengsl barna og foreldra hafa verið sögð skipta höfuðmáli þegar skoðaðir eru þeir þættir sem hafa áhrif á hvernig ungu fólki farnist í lífinu. Rannsóknir sýna að þeir sem eiga í góðum tilfinningalegum tengslum við foreldra sína eigi síður við sálræn eða félagsleg vandamál að stríða. Hin íslenska fjölskylda hefur breyst mikið á síðustu öld og mörg fjölskylduform hafa sprottið fram í samtímanum. Því eru tengsl fjölskylduforms og geðtengsla umfjöllunarefni þessarar rannsóknar. Unnið var úr gögnum úr rannsókninni Heilsa og lífskjör skólanema sem lögð var fyrir snemma á þessu ári. Þar voru skoðaðir fjölskylduhagir 10. bekkinga. Einnig voru skoðuð viðhorf þeirra til ýmissa tengsla milli sín og ólíkra fjölskyldumeðlima. Þátttakendur voru 1913 talsins eða um 40% af heildarþýðinu. Mælitækið sem notast var við í rannsókninni var spurningalisti sem nemendur fylltu sjálfir út. Helstu niðurstöður eru þær að 25% nemenda eiga sér annað heimili en aðeins 31,6% þeirra dvelja þar að einhverju ráði. Tilfinningatengsl móður mældust lág og mun lægri en tilfinningatengsl við föður. Foreldrar sem búa saman vita mest um það hvar unglingurinn er og hverjir vinir hans eru miðað við önnur fjölskylduform. Unglingar eiga almennt erfitt með að tala við stjúpforeldra eða í um 60% tilfella. Niðurstöður benda til þess að fjölskylduform hafi áhrif á tilfinningatengsl að einhverju leiti en þó ekki öllu.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/369


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
fjolskst.pdf1.17 MBTakmarkaðurFjölskylda samtímans - heildPDF
fjolskst-e.pdf505.07 kBOpinnFjölskylda samtímans - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
fjolskst-h.pdf407.34 kBOpinnFjölskylda samtímans - heimildaskráPDFSkoða/Opna
fjolskst-u.pdf398.92 kBOpinnFjölskylda samtímans -útdrátturPDFSkoða/Opna