Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3700
Í þessu B.Ed.-verkefni við Menntavísindasvið Háskóla Íslands er fjallað um hvernig megi einstaklingsmiða kennsluhætti í samfélagsgreinum á unglingastigi. Einstaklingsmiðað nám er mikið til umræðu í kennslufræðum nútímans og í ritgerðinni verður leitast við að fjalla almennt um einstaklingsmiðað nám og hvað felst í því hugtaki. Til að hægt sé að kenna einstaklingsmiðað verður sá sem kennir að gera sér grein fyrir því hvernig börn læra. Í því samhengi má nefna hugsmíðahyggjuna og þá fræðimenn sem hún byggir á. Einnig verður sýnt fram á hvernig einstaklingsmiðað nám er framkvæmt og því til stuðnings eru settar fram kennsluhugmyndir fyrir samfélagsgreinar á unglingastigi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skemma - ritgerðin - pd_fixed[1].pdf | 422.85 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
kápan - skemma - pan_fixed[1].pdf | 65.36 kB | Opinn | Kápa | Skoða/Opna |