Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/370
Tilgangur rannsóknarinnar var að endurtaka að hluta rannsóknir Luciano (1986) og
Miguel, Petursdottir og Carr (2005). Fjögur 5 ára börn (4 ára og 10 mánaða til 5 ára
og 6 mánaða) með eðlilegan þroska tóku þátt í rannsókninni. Tilgáta rannsóknarinnar
var að með innanyrðingarkennslu myndi hljótast skilningur í kjölfarið en ekki öfugt.
Tveimur börnum voru kenndar innanyrðingar og prófuð í skilningi og tveimur
kenndur skilningur og prófuð í innanyrðingum. Börnunum var kennt að flokka dýr í
rándýr og klaufdýr. Kennsla á innanyrðingum fór þannig fram að börnin voru spurð
t.d. „Hvernig dýr er tígrisdýr?“. Rétt svör voru styrkt. Kennsla á skilningi fór þannig
fram að börnin voru beðin um að benda á rándýr eða klaufdýr. Rétt svör voru styrkt.
Notast var við margfalt grunnlínusnið til að meta áhrif kennslu á innanyrðingum og
skilningi. Niðurstöðurnar sýndu að þau börn sem fengu kennslu í innanyrðingum
sýndu skilning þegar hann var prófaður. Þetta endurspeglar því niðurstöður
rannsóknar Luciano (1986). Annað barnanna sem fékk kennslu í skilningi sýndi ekki
fram á að nám á innanyrðingum hafi hlotist í kjölfar kennslunnar og féllu
niðurstöðurnar fyrir þetta barn því vel að niðurstöðum Miguel o.fl. (2005). Hitt barnið
sem fékk kennslu í skilningi sýndi hins vegar fram á fullkominn árangur þegar
innanyrðingar voru prófaðar. Niðurstöðurnar fyrir þetta barn voru því ekki í samræmi
við tilgátu rannsóknarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
innanyrding.pdf | 2.55 MB | Takmarkaður | Áhrif innanyrðingarkennslu og skilningskennslu á skilning og innyrðingar hjá fjórum börnum á leikskólaaldri - heild | ||
innanyrding-e.pdf | 56.12 kB | Opinn | Áhrif innanyrðingarkennslu og skilningskennslu á skilning og innyrðingar hjá fjórum börnum á leikskólaaldri - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
innanyrding-h.pdf | 105.65 kB | Opinn | Áhrif innanyrðingarkennslu og skilningskennslu á skilning og innyrðingar hjá fjórum börnum á leikskólaaldri - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
innanyrding-u.pdf | 57.3 kB | Opinn | Áhrif innanyrðingarkennslu og skilningskennslu á skilning og innyrðingar hjá fjórum börnum á leikskólaaldri - útdráttur | Skoða/Opna |