Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3712
Þetta lokaverkefni er í senn bæði heimildarritgerð og kennsluverkefni. Byrjað er á því að fjalla um fræðin á bak við lestrarnámið og lestrarkennsluna. Í seinni hlutanum eru kynntar fjölbreyttar kennsluaðferðir sem rannsóknir sýna að nýtast vel við einstaklingsmiðaða byrjendakennslu í lestri. Kynntar eru þrjár til fjórar gagnreyndar kennsluaðferðir sem þjálfa hvern og einn undirstöðuþátt lestrarnáms. Mikilvægt er að einstaklingsmiðuð lestrarkennsla sé byggð á skimun og mati á stöðu hvers nemanda við upphaf lestrarnámsins til þess að geta unnið út frá þörfum og getu hvers og eins. Með snemmtækri íhlutun er hægt að fækka þeim börnum sem lenda í lestrarerfiðleikum með því að taka mið af forspárþáttum sem geta sagt til um hverjir komi til með að lenda í erfiðleikum með lestur.
Í framhaldi af því er lögð áhersla á að beita viðurkenndum gagnreyndum kennsluaðferðum sem rannsóknir sýna að flýti fyrir lestrarþróun og sem spái best fyrir um árangur barna í lestri síðar á ævinni. Árangursrík lestrarkennsla þarf að taka mið af fimm undirstöðu þáttum lestrarnáms sem eru: 1) hljóðkerfisvitund, 2) umskráning og hljóðaaðferð, 3) lesfimi, 4) orðaforða, og 5) lesskilning. Ef unnið er markvisst með alla þessa þætti læsis stuðlar það að góðum árangri í lestarkennslu.
Lykilorð: Stigskipt kennsla
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Endanleg_lokaritgerd.pdf | 1.02 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |