is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3746

Titill: 
  • Líkamlegt ofbeldi gegn börnum í skjóli friðhelgi fjölskyldunnar. Hönd þín skal leiða en ekki meiða
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Það er markmið þessarar ritgerðar að skoða hvort íslenskt lagaumhverfi tryggi börnum vernd gegn líkamlegum refsingum foreldra eða umönnunaraðila í uppeldisskyni og hvort þessi réttindi vegi þyngra en réttur fjölskyldunnar til friðhelgi samkvæmt 71. gr. stjskr. Fyrst verður fjallað almennt um 71. gr. stjórnarskrárinnar og þá sérstaklega um verndarandlag friðhelgi fjölskyldunnar og takmarkanir þess. Samhliða þessari umræðu verður fjallað um 8. gr. MSE, sem er að nokkru leyti fyrirmynd fyrrnefnds stjórnarskrárákvæðis, og annarra alþjóðlegra samninga um málefni fjölskyldunnar og barna. Lengi hefur verið litið á líkamlegar refsingar foreldra á börnum sínum sem minni háttar ofbeldi og sums staðar sem mannbætandi aðgerð í uppeldisskyni. Þessi hugmyndafræði er á undanhaldi á Íslandi sem og í flestum ríkjum heims og er nú almennt talið óheimilt og óæskilegt að leggja hendur á börn í uppeldisskyni. Fjallað verður um íslenska löggjöf til verndar réttindum barna og reynt að varpa ljósi á hvernig löggjafarvaldið hafi náð að framfylgja skyldum sínum varðandi barnavernd þegar börn eru beitt ofbeldi í uppeldisskyni. Að lokum verður rætt hvort einhverra breytinga sé þörf á löggjöf á þessu sviði þar sem sérstök vernd barna og íhlutun stjórnvalda til verndar þeim stangast á við friðhelgi fjölskyldunnar og vald foreldra til þess að ákveða hvernig börn þeirra eru alin upp.

Samþykkt: 
  • 5.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3746


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Gunnlaugur_Geirsson_Forsida_fixed.pdf42.59 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
Gunnlaugur_Geirsson_Meginmal_fixed.pdf214.79 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna