is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3770

Titill: 
  • Ofbeldisfullir tölvuleikir og myndsköpun drengja : samanburður á teikningum drengja sem spila ofbeldisfulla tölvuleiki við teikningar drengja sem spila öðruvísi eða enga leiki
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar er að athuga hvort sjá megi á teikningum drengja hvort þeir spila ofbeldisfulla tölvuleiki eða ekki. Hvort myndir þeirra séu öðruvísi en drengja sem ekki spila slíka töluleiki. Rannsóknin beindist að drengjum í 4.bekk og voru þátttakendur þrettán talsins. Við tókum viðtöl við drengina og skoðuðum teikningar eftir þá og mátum þær með tilliti til ýmissa kenninga. Drengirnir þurftu einnig að merkja við myndir af 24 tölvuleikjum sem eru vinsælir hjá þessum aldurshópi með því að setja við þá broskarla en það gaf okkur vísbendingu um tölvuleikjaáhuga þeirra. Við unnum úr niðurstöðum með því að skoða svör drengjanna og bárum þau saman við teikningar þeirra. Niðurstöðurnar voru ekki afgerandi en þó mátti sjá á teikningum hjá sumum drengjanna sem spiluðu ofbeldisfulla leiki að þeir reyndu á einn eða annan átt að endurskapa tölvuheiminn í teikningum sínum. Einnig mátti draga þá ályktun af gögnum að ofangreindir drengir væru ekki komnir jafn langt í myndþroska og þeir drengir sem spiluðu minna af ofbeldisfullum tölvuleikjum.

Samþykkt: 
  • 29.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3770


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
tolvurteikningarihguja_fixed.pdf4.25 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna