is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3798

Titill: 
  • Skólasaga í kringum 1950 : skyggnst inn í líf fjögurra einstaklinga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi ritgerð fjallar um skólasögu fjögurra einstaklinga á árunum í kringum 1950. Hún fjallar um mismunandi valmöguleika og leiðir sem viðmælendum okkar stóðu til boða. Reynt var að skyggnast inn í tíðarandann og fá innsýn inn í almennt líf á þessum tíma. Viðtöl voru tekin við tvær konur og tvo karla sem fædd eru á árunum 1942-44 og ólust upp á misstórum þéttbýlisstöðum utan Reykjavíkur. Jafnframt var viðtölunum fylgt eftir með símaviðtölum jafnóðum þegar spurningar vöknuðu um tiltekin atriði.
    Helstu niðurstöður eru að skipulag skólastarfs, á stöðunum sem til umfjöllunar eru í ritgerðinni, virðist hafa verið með mjög líkum hætti. Þessir þéttbýlisstaðir, þó misstórir séu, hafa því fylgt gildandi lögum um fræðslu barna á þessum tíma og lauk skyldunáminu með unglingaprófi. Námsefni og kennsluaðferðir voru mjög áþekkar og ræður þar mestu menntun kennara og fastar hefðir í skólahaldi. Reynsla heimildarmanna okkar af skólanum var því svipuð en það var jafnframt margt sem kom á óvart og hefur breyst þegar skólastarf og almennt líf fólks á þessum tíma var skoðað.

Samþykkt: 
  • 30.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3798


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Microsoft Word - lokaloka..pdf1.12 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna