Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3800
Þessi ritgerð fjallar um erfiðleika sem fram geta komið við lestrarnám og hvernig lestur þróast. Fjallað er um lestur almennt, hve mikilvægt það er að þróa lestraröryggi hjá ungum lesendum. Því næst er fjallað um dyslexíu, m.a. farið í fræðin og fjallað um rannsóknir sem hafa verið gerðar á henni. Tekið er viðtal við móður tveggja drengja sem báðir eru greindir með dyslexíu. Í dag eru drengirnir tuttugu og eins árs og átján ára gamlir. Annar er greindur með dyslexíu en hinn með dyslexíu, ásamt athyglisbresti og vísi að ofvirkni. Komið er inn á hversu mikilvægt það er að grípa nógu snemma inn í lestrarferlið hjá nemendum sem eiga í lestrarerfiðleikum með markvissri kennslu. Til eru margar aðferðir við lestrarkennslu og er mikilvægt að kennari geti beitt fleiri en einni aðferð í kennslu sinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
a_fixed Dyslexía.pdf | 388.05 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |