is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3808

Titill: 
  • Plöntusnjall : hugmyndabanki fyrir leikskólastarf : íslenskar plöntur
Titill: 
  • Greinagerð með handbókinni Plöntuspjall : leikið og lært með íslenskar plöntur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis, sem er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við Menntavísindasvið Háskóla Íslands er: Hvernig getum við vakið athygli á plöntum í náttúru Íslands og unnið út frá því í leikskólastarfi?
    Í verkefninu eru námssvið leikskóla samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla höfð að leiðarljósi. Verkefnið er tvíþætt: Annars vegar er greinargerð þar sem fjallað er á fræðilegan hátt um gildi umhverfismenntunar og útikennslu auk þess hvernig börn læra. Þar er m.a. vitnað í kenningar um hugsmíðahyggju og fjölgreindarkenninguna. Hins vegar er handbók sem hefur þann tilgang að koma á framfæri aðgengilegum hugmyndum og leiðbeiningum um vinnu með íslenskar plöntur í leikskólastarfi. Vonir okkar standa til að bókin nýtist sem gagnlegt uppflettirit fyrir starfsfólk leikskóla, foreldra og börn og skapi tækifæri til að kynnast fjölbreytileika plantna, sérkennum þeirra og margvíslegu notagildi. Náttúran er okkar stærsti leikvöllur og við eigum að nýta hana í uppeldi barnanna. Það er okkar trú að með því að vekja athygli leikskólabarna á íslenskri náttúru á þennan hátt, verði þau meðvitaðri um gildi náttúrunnar þegar fram í sækir.
    Lykilorð: Íslenskar plöntur, leikskólabörn, náttúran.

Samþykkt: 
  • 30.9.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3808


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
document_fixed.pdf234.82 kBLokaðurGreinargerð PDF
doc_fixed.pdf608.87 kBLokaðurHandbókPDF