Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3811
Greinagerðin er byggð í kringum barnabókina „Fjörkálfar“ sem er ætluð leikskólabörnum. Bókin var skrifuð í ljósi þess hversu mörg börn með ADHD eiga erfitt með samskipti við önnur börn. Byrjað var á að fjalla um ADHD, þ.e.a.s. að skilgreina hvað það er, fylgiraskanir, orsakir, tíðni og kynjahlutfall, uppeldi barna og unglinga með ADHD, stúlkur með ADHD og ADHD í leikskólum. Síðan var fjallað í stórum dráttum um barnabókina og aðalpersónuna. Þá var gerð grein fyrir uppbyggingu á persónusköpun, lýsingum og myndum. Auk þess var sagt frá hvaða tilgangi það þjónar að hafa bókina gormaða og hvernig hún var byggð upp í fjórtán félagsfærnisögur með umræðupunktum eftir hverja sögu. Þá var hver saga fyrir sig skoðuð ítarlega og fjallað um markmið þeirra, innihald og tengingu þeirra við fræðin.
Lykilorð: Félagshæfnisögur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinagerð - Fjörkálfar.pdf | 212.7 kB | Lokaður | Greinagerð | ||
bok.pdf | 11.43 MB | Lokaður | Fjörkálfar - barnabók | ||
kapa.pdf | 734.2 kB | Lokaður | Kápa fyrir barnabókina |