Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3839
Landafræði í leikskóla er lokaverkefni til B.Ed.-gráðu á Menntavísindasviði við
Háskóla Íslands vorið 2009. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar greinargerð og hins
vegar hugmyndabanki með viðfangsefnum sem byggjast á landafræði og útinámi.
Greinargerðin er fræðileg dýpkun á verkefnunum, innihaldi þeirra sem og tengingu
þeirra við markmið Aðalnámskrár leikskóla. Hugmyndabankinn inniheldur átta
verkefni sem nýtast eiga leikskólakennurum í Vesturbæ Reykjavíkur eða kennurum
yngstubarna á sama svæði. Meginmarkmiðið með hugmyndabankanum er að safna
saman hugmyndum að vettvangsferðum og viðfangsefnum sem tengjast landafræði.
Þá á hann að vera kennurum innblástur til að fara út og skoða nærumhverfi sitt út frá
sjónarhorni landafræðinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hugmyndabanki_fixed.pdf | 363.39 kB | Opinn | Hugmyndabanki | Skoða/Opna | |
Greinargerð_fixed.pdf | 173.01 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |