is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3843

Titill: 
  • „Það er allt í lagi... við höfum nægan tíma“ : um samskipti barna og fullorðinna á fámennum og fjölmennum deildum í leikskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar var að reyna að varpa ljósi á áhrif barnafjölda á samskipti barna og fullorðinna á leikskóla. Framkvæmdar voru skráningar í tveimur leikskólum í Reykjavík. Annars vegar voru skoðuð samskipti á fjölmennri deild þar sem dvöldu 26 börn og hins vegar á fámennri deild þar sem dvöldu 15 börn. Börnin voru á aldrinum fjögurra til sex ára. Aðferðin sem notuð var til að safna gögnum nefnist skráning jafn harðan en þá skráðu höfundar niður jafnóðum það sem gerðist í aðstæðum. Niðurstöðurnar voru svo bornar saman við þrjár hugmyndir um félagslegt umhverfi í leikskólum. Um er að ræða kenningu Hohmann & Weikart, rannsókn Johansson á félagslegu umhverfi sænskra leikskóla og hugmynd Bae um viðurkennandi samskipti. Einnig verður lýðræði í skólastarfi og sjálfræði barna haft að leiðarljósi. Helstu niðurstöður voru aukin stýring leikskólakennarans á fjölmennari deildinni og meiri fjarlægð milli leikskólakennara og barna. Á fámennari leikskólanum virtist ríkja meiri nálægð og einkenndust samskiptin af léttleika.
    Lykilorð: Barnafjöldi, félagslegt umhverfi.

Samþykkt: 
  • 1.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3843


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
það er allt í lagi... við höfum nægan tíma.pdf312.98 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna