Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3843
Markmið ritgerðarinnar var að reyna að varpa ljósi á áhrif barnafjölda á samskipti barna og fullorðinna á leikskóla. Framkvæmdar voru skráningar í tveimur leikskólum í Reykjavík. Annars vegar voru skoðuð samskipti á fjölmennri deild þar sem dvöldu 26 börn og hins vegar á fámennri deild þar sem dvöldu 15 börn. Börnin voru á aldrinum fjögurra til sex ára. Aðferðin sem notuð var til að safna gögnum nefnist skráning jafn harðan en þá skráðu höfundar niður jafnóðum það sem gerðist í aðstæðum. Niðurstöðurnar voru svo bornar saman við þrjár hugmyndir um félagslegt umhverfi í leikskólum. Um er að ræða kenningu Hohmann & Weikart, rannsókn Johansson á félagslegu umhverfi sænskra leikskóla og hugmynd Bae um viðurkennandi samskipti. Einnig verður lýðræði í skólastarfi og sjálfræði barna haft að leiðarljósi. Helstu niðurstöður voru aukin stýring leikskólakennarans á fjölmennari deildinni og meiri fjarlægð milli leikskólakennara og barna. Á fámennari leikskólanum virtist ríkja meiri nálægð og einkenndust samskiptin af léttleika.
Lykilorð: Barnafjöldi, félagslegt umhverfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
það er allt í lagi... við höfum nægan tíma.pdf | 312.98 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |