Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3879
Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvernig kynfræðslu er háttað í grunnskólum og
hvernig stuðning og fræðslu stúlkur sem verða ófrískar á grunnskólaaldri fá ef þær ákveða að
ljúka meðgöngu. Leitað var svara við þessum spurningum hjá skólahjúkrunarfræðingum,
lækni sem vinnur á heilsugæslustöð, lífsleiknikennurum, mæðrum sem eignuðust börn í
grunnskóla og barnshafandi stúlkum í grunnskóla. Gagnanna var aflað með eigindlegum
viðtölum við ellefu einstaklinga. Viðtölin voru greind með tilliti til þessara tveggja spurninga
hér að ofan. Upplýsingar um tíðni kynsjúkdóma eru sláandi. Í niðurstöðum kemur fram að
öllum viðmælendum þótti kynfræðslu vera ábótavant í grunnskólum auk þess sem lítill
stuðningur virðist vera frá skólum til barnshafandi unglingsstúlkna.Viðmælendum okkar sem
hafa verið ófrískar í grunnskóla og átt barnið á þeim tíma finnst kynfræðsla hafi verið af
skornum skammti og situr hún ekki eftir í minningu þeirra. Fræðsla um meðgöngu, fæðingu
og uppeldi barna, til barnshafandi unglingsstúlkna virðist ekki koma frá hendi skólans, hvorki
frá kennurum né skólahjúkrunarfræðingum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
%C1byrgur einstaklingur- skemma.pdf | 2.07 MB | Lokaður | Heildartexti |