is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3889

Titill: 
  • Auðveldar tákn með tali aðgreiningu? Samanburður á aðgreiningu með annarsvegar tali og hins vegar tákn með tali
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þremur börnum í sérskóla fyrir fötluð börn var kennd aðgreining milli sex fána með
    táknum og tali og annarra sex fána einungis með tali. Notast var við breytilegt
    inngripssnið (alternating treatment design) þar sem aðferðirnar voru kenndar til
    skiptis yfir tímabil. Einstaklingstilraunasnið var notað til að meta hvort börnin væru
    fljótari að læra aðgreiningu eftir því með hvorri aðferðinni þeim var kennt. Þá var
    kannað hvort hegðun barnanna, ef þau lærðu fánana með táknum og tali, væri undir
    stjórn tals, tákna eða beggja. Niðurstöður rannsóknarinnar voru mismunandi eftir
    börnum. Fyrsti þátttakandinn lærði ekki aðgreiningu milli fána með tal aðferðinni og
    táknin virtust auðvelda honum nám þó svörun hans hafi verið undir stjórn talsins.
    Annar þátttakandinn var fljótari að læra aðgreininguna í fyrri hlutanum með tákn með
    tali (TMT) aðferðinni en tal aðferðinni í seinni hlutanum. Þriðji þátttakandi gat ekki
    lært aðgreiningu milli fánanna með TMT aðferðinni og það virtist trufla hann að hafa
    táknin. Útfrá þessum niðurstöðum má álykta að tákn með tali henti ekki öllum og því
    þarf að skoða vandlega hvað hentar hverjum og einum áður en kennsla hefst ef
    ætlunin er að börnin nái betri færni á talmáli.

Samþykkt: 
  • 6.6.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3889


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hugrun_og_Kolbrun_fixed.pdf1.41 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna