Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3892
Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun (Positive Behavior Support; PBS) er kerfi fyrir skóla sem stuðlar að æskilegri hegðun og fyrirbyggir hegðunarvandamál. Fræðilegur grunnur á bakvið kerfið liggur fyrst og fremst í atferlisgreiningu og hafa fræðimenn í Háskólanum í Oregon unnið að þróun kerfisins og rannsóknum á því. Hér á Íslandi hafa margir skólar tekið upp kerfið og fjallar þessi ritgerð um rannsókn á áhrif PBS á hegðun barna og starfsfólks á miðstigi í þremur grunnskólum í Reykjanesbæ. Rannsóknin var gerð með beinu áhorfi og er það í fyrsta skipti, svo vitað sé til, sem rannsókn mælir árangur PBS kerfisins á þann hátt. Rannsóknin er langtíma og hér eru kynntar niðurstöður úr þriðju grunnlínumælingu til þessa og fyrstu inngripsmælingum í tveimur skólum. Fyrstu niðurstöður sýna að óæskileg hegðun hefur minnkað og þá sérstaklega á almennum svæðum. Einnig hafa röng viðbrögð starfsmanna minnkað, eins og neikvæð fyrirmæli, óviðeigandi hegning og óviðeigandi hunsun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
STE_efnisyfirlit_utdrattur_fixed.pdf | 10.82 kB | Opinn | Efnisyfirlit, útdráttur | Skoða/Opna | |
STE_forsida_fixed.pdf | 22.4 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
STE_meginmal_fixed.pdf | 949.62 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
STE_vidauki1_fixed.pdf | 101.16 kB | Opinn | Viðauki 1 | Skoða/Opna | |
STE_vidauki2_fixed.pdf | 98.6 kB | Opinn | Viðauki 2 | Skoða/Opna |