Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3945
Tilgangurinn með þessari rannsókn var að varpa ljósi á þá framtíðarsýn sem foreldrar fatlaðra framhaldsskólanemenda hafa fyrir ungmenni sín eftir útskrift úr starfsbraut framhaldsskólanna. Eigindleg rannsókn var gerð og voru þátttakendur foreldrar þriggja framhaldsskólanema á starfsbraut tveggja framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður bentu til þess að foreldrar óttast hvaða úrræði eru til staðar fyrir ungmenni þeirra á fullorðinsárunum. Helstu áhyggjur voru búsetuúrræði, dagvistunarúrræði og félagslegri einangrun. Foreldrarnir voru hræddir um að ungmennin myndu gleymast á þessum tímum erfiðleika í íslensku þjóðfélagi, sérstaklega í ljósi þess að þau virðast hafa gleymst í góðærinu. Foreldrar óttuðust einnig að þau úrræði sem eru til staðar myndu ekki henta persónuleika ungmenna þeirra og ekki yrði tekið tillit til þarfa þeirra og óska.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni.php.pdf | 397.11 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |