is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3963

Titill: 
  • Sterk saman : sjálfstyrking barna og unglinga með ADHD og hlutverk þroskaþjálfa
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni mitt til BA- prófs við menntavísindasvið Háskóla Íslands í þroskaþjálfafræðum. Markmiðið með ritgerðinni er að skoða sjálfstyrkingu barna og unglinga með ADHD og hlutverk þroskaþjálfa.
    Fjallað er almennt um ADHD og birtingarform röskunarinnar og hvernig hún birtist í barnæsku. Vímuefnaneysla er meðal annars talin áhættuþáttur í lífi unglinga með ADHD og verður sérstaklega tekin fyrir. Kenning Erik H. Eriksonar um mótun sjálfsmyndar og hlutverk unglingsáranna er rædd með hliðsjón af börnum og unglingum með ADHD. Að endingu er fjallað um þroskaþjálfann, menntun, starfskenningu og vinnubrögð. Það er að segja hvernig sérþekking þroskaþjálfans nýtist til þess að efla sjálfsmynd unglinga með ADHD. Aðaláhersla er lögð á þá þætti sem eru til þess fallnir að styrkja sjálfsmynd barna og unglinga með ADHD.

Samþykkt: 
  • 7.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3963


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Microsoft Word - Sterk-saman...pdf277.43 kBLokaðurHeildartextiPDF