Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3964
Megintilgangur þessa verkefnis var tvíþættur, annars vegar að kynnast starfsemi tveggja meðferðarheimila sem rekin er á vegum Barnaverndarstofu, fyrir unglinga sem stofna þroska og lífi sínu í hættu með alvarlegri hegðun sinni eða vímuefnanotkun. Hins vegar að skoða hvernig þekking og menntun þroskaþjálfa geti nýst í meðferðarstarfinu. Verkefnið byggir á heimildaöflun og þeirri hugmyndarfræði sem starfað er eftir á meðferðarheimilunum.
Niðurstöðurnar eru að meðferðarstarf byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun með áherslu á fagleg vinnubrögð í tengslum við unglinginn og fjölskyldu hans. Ef hugmyndarfræði að baki þroskaþjálfunar og þau megingildi sem þeir starfa eftir eru borin saman við það starf sem fram fer á meðferðarheimilum, þá eiga þroskaþjálfar fullt erindi inn í starfið til að hlúa að þroska barna sem búa við þroskaraskanir í samstarfi með fleiri fagstéttum.
Lykilorð: Meðferðarúrræði, starfshættir þroskaþjálfa.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba.pdf | 285.49 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |