is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/397

Titill: 
  • Þjóðsögur af Reykjavesi : námsvefur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari greinargerð með lokaverkefni til B.Ed. prófs frá Kennaraháskóla Íslands er fjallað um námsvef um þjóðsögur á Reykjanesi. Á námsvefnum sem ætlaður er grunnskólanemendum í 1.-10. bekk eru rúmlega hundrað og fimmtíu þjóðsögur af Reykjanesi og leitast er við að kynna þennan þjóðsagnaarf fyrir nemendum með því að hafa sögurnar aðgengilegar á vef ásamt verkefnum sem unnin eru úr þeim. Þess má geta að hægt er að hlusta á flestar þjóðsögurnar.
    Við hönnun vefsins var hugmyndafræðin um einstaklingsmiðað nám og heildstæða móðurmálskennslu hafðar að leiðarljósi sem og fjölgreindakenning Howards Gardners og flokkunarkerfi Benjamins Blooms um námsmarkmið.
    Vefnum er skipt í tvö þyngdarstig sem eru Krakkar og Unglingar en innan hvors flokks eru fjölmörg verkefni sem tengjast lestri, íslensku, hlustun, ritun, stærðfræði, náttúrufræði, landafræði, upplýsingatækni og listum og handmennt. Verkefnin eru fjölbreytt og ættu að höfða til flestra grunnskólanemenda á aldrinum 7-16 ára.
    Þjóðsögur sem sagnaarfur er mikilvægur þáttur í menningu hverrar þjóðar en markmið þessa lokaverkefnis er að kynna þjóðsagnaarf Reyknesinga og gera hann aðgengilega grunnskólanemendum.

Samþykkt: 
  • 15.8.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/397


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
GreinargerðGuðný.pdf597.15 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Vefur.zip34.8 MBOpinnVefurGNU ZIPSkoða/Opna