is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3995

Titill: 
  • Menntun til sóknar á háskólastigi á Norðurlandi vestra : rannsókn á viðhorfum íbúa á Norðurlandi vestra 18-60 ára til háskólanáms
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Greint er frá rannsókn sem hafði það markmið að kanna hug fólks á
    aldrinum 18–60 ára á Norðurlandi vestra til háskólanáms. Lítið var vitað
    um viðhorf fólks á þessu svæði til æðri menntunar. Gildi rannsóknarinnar
    var því að safna upplýsingum um viðhorf fólks á þessu svæði og þá
    hugsanlegu þætti er stuðlað eða hindrað geta fólkið í að afla sér æðri
    menntunar.
    Gögnum í rannsóknina var safnað með spurningalista sem hannaður
    var og notaður til að mæla viðhorf þátttakenda. Í rannsókninni var lagt
    upp með einfalt 1000 manna slembiúrtak úr þjóðskrá sem tekið var hjá
    Skýrsluvélum ríkisins.
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að íbúar Norðurlands
    vestra á aldrinum 18–60 ára hafi jákvætt viðhorf til háskólanáms. Flestir
    sjá háskólanám sem forsendu að fjölbreyttari störfum á atvinnumarkaði
    (83%), betur launuðum störfum (77%) og í jákvæðu ljósi fyrir
    Norðurland vestra í samkeppninni við önnur landssvæði. Ennfremur
    virðast þátttakendur sjá gildi náms á háskólastigi sem þátt í að skapa fleiri
    störf á svæðinu og laða fleira fólk til þess.
    Þegar höfð eru í huga jákvæð viðhorf þátttakenda til æðri
    menntunar kemur ekki á óvart að niðurstöðurnar leiða í ljós að talsvert
    stór hópur svarenda 33% hefur hug á að stunda grunnháskólanám og enn
    stærri hópur eða 42% hefur áhuga á að stunda það nám á Norðurlandi
    vestra. Á hinn veginn sýna niðurstöðurnar að þátttakendur upplifa þætti er
    mögulega hindra þátttöku þeirra í slíku námi auk þess sem karlar eru
    minna áhugasamir um æðri menntun en konur.
    Ef fyrst er horft til þess hvernig þátttakendur upplifa aðgengi að
    námi á háskólastigi á Norðurlandi vestra sýna niðurstöðurnar að einungis
    rétt rúmur helmingur þátttakenda telur aðgengið ásættanlegt. Meirihluti
    þátttakenda (75%) virðist eiga mjög eða frekar erfitt með að finna sér
    nám við hæfi á Norðurlandi vestra og nánast allir svarendur (94%) vilja
    sjá fjölbreyttara námsframboð og þá ekki síst að í boði sé nám fyrir fólk
    með mikla starfsreynslu en litla formlega menntun. Þátttakendur vilja
    helst sjá að í boði sé fullt eða að hluta til staðbundið nám á Norðurlandi
    vestra eingöngu. Ef sá möguleiki er ekki fyrir hendi kjósa þátttakendur að í boði sé fjarnám við háskóla sem ekki eru staðsettir á Norðurlandi vestra.
    Síst vilja þátttakendur sjá að í boði sé háskólanám að sumarlagi.

Samþykkt: 
  • 12.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/3995


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Menntun til sóknar á háskólastigi á Norðurlandi vestra...pdf964.53 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna