Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/3999
Þetta langvarandi stríðsástand fékk hann til þess að útbúa aðferð sem gæti
tryggt sigurinn á fljótlegan og skynsaman hátt og þannig mögulega bundið
fyrir endann á þessum hræðilegu átökum. Aðferð hans var byggð á hreinni
praktík og sleppti öllum ríkjandi hugmyndum um heiður og mikilfengleika
stríðs. Það eina sem skipti máli var að ná á fljótan hátt yfirhendinni og
þannig vinna skjótan sigur, sama hvaða aðferðum væri beitt. Sunzi átti því
að hafa samið þá þrettán kafla sem segja til á mjög skynsaman hátt hvernig
mætti öðlast sigurinn með auðveldum útreikningum, og hverning mætti
notfæra sér stöðu og fyrirliggjandi aðstæður umhverfisins til að yfirbuga
andstæðing.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hlynur_Hrafn_fixed.pdf | 295.78 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |