is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4021

Titill: 
  • Stundum er betra að hlusta en tala : hvernig eru boðskipti á milli stjórnenda og kennara í grunnskóla?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni rannsóknarinnar sem hér birtist er að leita svara við hvernig boðskipti fara fram milli stjórnenda og kennara í grunnskóla einum á Íslandi. Skoðað var hvaða boðskiptamiðlar eru notaðir til að koma boðum á milli þessara aðila og áhrif tækninnar á boðskiptin í skólanum.
    Helstu hugtök sem stuðst er við eru formleg og óformleg boðskipti, opin og lokuð boðskipti, yrt og óyrt boðskipti, lóðrétt boðskipti og einhliða og tvíhliða boðskipti og boðskiptamiðlar.
    Rannsóknarspurningar eru þrjár:
    • Hvernig fara boðskipti fram á milli stjórnenda og kennara í grunnskóla?
    • Hvaða boðskiptamiðlar eru notaðar í skólanum?
    • Hvernig hefur tæknin áhrif á boðskipti í skólanum?
    Heiti ritgerðarinnar er:
    Stundum er betra að hlusta en tala
    Ritgerðin er byggð á eigindlegri rannsókn á boðskiptum í einum grunnskóla á Íslandi. Tekin voru hálfopin viðtöl við skólastjórnendur og kennara í grunnskóla einum á Íslandi. Ennfremur var vettvangsathugun í skólanum og athugun á boðskiptakerfi skólans og einnig fóru óformleg viðtöl fram við stjórnendur og kennara.
    Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til að tölvutæknin hafi breytt boðskiptum þó munnleg boðskipti hafi ekki minnkað. Upplýsingastreymi til og frá og innan skólans sem var til rannsóknar hefur margfaldast í upphafi nýrrar aldar. Boðskipti stjórnenda eru munnleg í bland við notkun tölvutækninnar.

Samþykkt: 
  • 15.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4021


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
2009_fixed.pdf792.84 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna