Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4023
Markmið verkefnisins var að skoða áhrif lána, launa og auðsáhrifa á neyslu landsmanna á árunum 2000 til miðs árs 2007. Sett var fram neyslulíkan til að útskýra þessi tengsl. Skoðað var hver af þessum þremur breytum hefði mest áhrif á neyslu landsmanna á þessu tiltekna tímabili og í hversu miklum mæli.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að laun höfðu hvað mest áhrif á neyslu landsmanna á árunum 2000-2007. Auðsáhrif höfðu einnig áhrif á neysluna. Komu þær niðurstöður höfundi ekki mikið á óvart. Aftur á móti kom í ljós að lán höfðu neikvæð áhrif á neyslu landsmanna á þessum tilteknu árum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Asta_Heidrun_fixed.pdf | 534.64 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |