is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/402

Titill: 
  • Skilgreining á lifrarprótínmengi í bleikju : (salvelinus alpinus)
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Frá örófi alda hefur mannkynið nýtt auðlindir hafsins. Á seinni árum hefur
    fiskeldi vaxið mjög í hlutfalli við veiðar úr villtum stofnum. Fiskeldi er
    talið nauðsynlegt vegna samdráttar í veiðum samhliða aukinni neyslu.
    Helsti ókostur fiskeldis er hversu hár fóðurkostnaðurinn er í heildar
    framleiðslukostnaður á eldisfiski og á það sérstaklega við um prótínhluta
    fóðursins. Fóðurkostnaður í bleikjueldi er sérstaklega hár. Nauðsynlegt er
    að lækka þennan kostnaðarlið með m.a. útskiptingu á fiskiprótínum fyrir
    jurtaprótín og þar með minnka slátrun á villtum fiski til fóðurgerðar.
    Ýmsum aðferðum er beitt við rannsóknir á tilraunafóðrun í eldi,. Ein
    aðferð, sem reynst hefur vel, er prótínmengjagreining sem metur
    breytingar á prótínum í lifur fisks, fyrir og eftir tilraunafóðrun., Í verkefni
    þessu var leitast við að setja upp aðferð til tvívíðrar
    prótínmengjagreiningar á lifrarprótínmengi bleikju. Ritsmíð þessi lýsir
    þessari viðleitni, ak kynningar á fiskeldi, bleikjueldi, fóðrun og
    prótínmengjagreiningu. Prótínmengjarannsóknir hafa verið stundaðar og
    eru miklir möguleikar í þeim efnum. Þörf er á ódýrara fóðri í bleikjueldi og
    mögulegt er að finna hentuga prótínblöndu með prótínmengjagreiningu. Í
    þessu verkefni var stefnt að því að setja upp tæki og aðferðir
    prótínmengjagreiningar við HA svo hægt verði í framtíðinni að flytja
    prótín úr lifur á gel til greiningar á staðlaðan og fljótlegan hátt. Í
    verkefninu var hafist handa við aðferðaþróun á þessu sviði, en mikið verk
    er enn óunnið, enda er verkefnið aðeins hluti af stærra og umfangsmeira
    verkefni.
    Lykilorð: Fiskeldi, bleikja, fóðrun, jurtafæða, prótínmengjagreining.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/402


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
skilgrprotinmengi.pdf675.58 kBTakmarkaðurHeildartextiPDF
skilgrprotinmengi_e.pdf118.96 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
skilgrprotinmengi_h.pdf170.01 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
skilgrprotinmengi_u.pdf101.99 kBOpinnSkilgreining á lifrarprótínmengi í bleikju - útdrátturPDFSkoða/Opna