Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4033
Markmið með þessari rannsókn var að kanna hvort auka mætti færni í lestri með
því að þjálfa lestrarfærni með aðferðum beinnar kennslu (direct instruction) og
flaumþjálfunar (fluency training). Markmið með þjálfun var að auka lestrarhraða
og draga úr villum í lestri. Þátttakendur voru fjögur börn í 4. bekk sem öll höfðu
slaka færni í lestri. Tvö barnanna fengu þjálfun með fyrrgreindum aðferðum í
25-30 mínútur á dag innan skólatíma. Rannsóknarsnið var margfalt
grunnlínusnið, byrjað var að þjálfa þátttakanda 1 og þjálfun hófst svo með
þátttakanda 2 þegar þjálfun var farin að sýna árangur hjá þátttakanda 1.
Þátttakendur 3 og 4 fengu ekki þálfun en grunnlínumælingar voru gerðar hjá
þeim allan tímann sem rannsóknin stóð yfir. Eftirfylgdarmælingar voru gerðar
hjá þátttakendum 1, 2 og 4. Niðurstöður sýna að villum fækkaði og færni í
lestrarhraða mæld í atkvæðum á mínútu jókst hjá þátttakendum sem fengu
þjálfun. Aukningin var umfram það sem gera hefði mátt ráð fyrir án þjálfunar
miðað við grunnlínumælingar og fyrri frammistöðu í námi. Aukningin var
einnig meiri en hjá þátttakendum sem fengu ekki þjálfun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni_fixed.pdf | 448.31 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |