is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4061

Titill: 
  • Samfélagsáhrif á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og Norðurþing ef álver á Bakka rís
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Efni þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á þau áhrif og þær breytingar sem myndu verða í
    Norðurþingi ef álver á Bakka rís. Fjallað verður um álverið á Reyðarfirði og aðstæður þar og á
    Húsavík bornar saman og litið er til þeirra þátta sem skoða þarf ef álver kemur á Bakka.
    Aðallega er horft til Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og aðstæður þar kannaðar og greining
    gerð á hverjar væntanlegar þarfir munu vera.
    Þau gögn er voru notuð við skrif ritgerðarinnar voru fengin með viðtölum, blaðagreinum og
    upplýsingum af Veraldarvefnum.
    Umfjöllun hefur verið síðast liðin tvö ár um að reisa álver á Bakka við Húsavík. Skiptar
    skoðanir eru meðal fólks hvort álver á þeim stað sé æskilegt eða ekki. Sumir segja að halda
    skuli náttúrunni í sinni eðlilegustu mynd, aðrir eru á móti stóriðju yfirleitt og svo þeir aðilar
    sem vilja fá álver með það að leiðarljósi að atvinnuaukning verði í Norðurþingi.
    Ekki er hægt að alhæfa nokkuð í þessum málum þar sem enginn getur sagt til um hver áhrifin
    í Norðurþingi yrðu ef álver kæmi á Bakka. En með því að bera saman þær niðurstöður sem í
    ljós komu þegar álverið á Reyðarfirði var byggt ásamt þeim gögnum sem notðuð voru við
    ritgerðarsmíðina, við Norðurþing í dag, er möguleiki að áætla væntanleg áhrif á samfélagið.
    Reyðarfjörður og Norðurþing eru sambærileg að þessu leyti, vegna þess að staða þeirra var
    svipuð, þ.e.a.s. áður en álverið kom á Reyðarfjörð.
    Hvort álver sé vænlegur kostur eins og staðan í þjófélaginu er í dag, er ekki gott að segja um.
    En þar sem að lítið hefur heyrst um hver áhrifin yrðu á Norðurþing ef til framkvæmda kæmi,
    gæti þessi sýn á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sýnt fram á þær miklu breytingar sem yrðu á
    þessu litla samfélagi sem Norðurþing er.

Samþykkt: 
  • 28.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4061


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
erla_bjarnadottir_fixed.pdf1.5 MBOpinnRitgerðin öllPDFSkoða/Opna