Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4062
Á undanförnum misserum hefur íslenskt þjóðlíf farið í gegnum miklar breytingar og hefur það ekki farið framhjá hinum almenna neytanda eins og verð á neysluvörum hefur hækkað á Íslandi.
Viðfangsefni þessarar skýrslu er að fjalla um Beint frá Býli, samtök heimavinnsluaðila á Íslandi og spurningakönnun sem höfundur gerði á meðal neytenda til að kanna þekkingu þeirra á samtökunum og hverju þau standa fyrir. Markmið þessarar rannsóknar var að fá vísbendingar um hver þekking neytenda er á samtökunum svo taka megi betri ákvarðanir í markaðsmálum í framtíðinni. Einnig var það áhugi höfundar á samtökunum sem ráku hann út í að gera þessa rannsókn.
Í rannsókninni er spurt út í almenna þekkingu á íslenskum landbúnaði og svo þekkingu á Beint frá Býli, þessi svör svo greind með framtíðar markaðssetningu samtakanna að leiðarljósi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Thorvaldur_Hjaltason_fixed.pdf | 881.99 kB | Lokaður | Ritgerðin öll |