Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4068
Meginmarkmið ritgerðarinnar er að skoða þróun úrlausna kærunefndar jafnréttismála frá árunum
1997 – 2009. Ástæðan fyrir valinu er sú að oftar en ekki eru álit nefndarinnar umdeilanleg enda
er verið að fjalla um viðkvæm mál. Við vinnslu ritgerðarinnar voru álitin flokkuð og sett inn í
skjal þar sem horft var til hina ýmsu þátta. Þar ber helst að nefna hvaða kröfur voru gerðar til
umsækjenda, hver var menntun þeirra og reynsla, hvað vó þyngst við ráðninguna og að lokum
hver var rökstuðningur kærunefndar. Þessar breytur voru síðan notaðar til að sýna ýmsar
tölulegar upplýsingar sem er að finna í ritgerðinni á myndrænan hátt.
Í upphafi er fjallað um stjórnskipun, því næst þróun jafnréttismála og jafnréttislaga hér á landi.
Þá er gerð grein fyrir stjórnsýslunni á sviði jafnréttismála og helstu stofnunum. Loks er farið yfir
valin álit kærunefndar og niðurstöður unnar út frá þeim.
Helstu niðurstöður skoðunnarinnar eru að stefnubreyting varð hjá kærunefnd jafnréttismála
þegar Hæstaréttardómar nr. 121/2002 og nr. 330/2003 féllu. Svo virðist sem sönnunarbyrðin hafi
orðið minni og atvinnurekandanum gefið aukið svigrúm til að meta huglæga þætti
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
vigdis_thora_fixed.pdf | 424.52 kB | Opinn | Ritgerðin öll | Skoða/Opna |