is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Meistarverkefni í félagsvísindadeild (MA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4074

Titill: 
  • Myndlistargagnrýni : eintal sem leitar eftir samræðu : viðhorf aðila innan myldistarsviðsins til myndlistargagnrýni í fjölmiðlum á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi byggir á að kanna viðhorf aðila innan myndlistarsviðsins til myndlistargagnrýni í fjölmiðlum á Íslandi. Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar eru kenningar franska félagsfræðingsins Pierre Bourdieu. Í upphafi verkefnisins er fjallað um þann bakgrunn sem myndlistargagnrýni í nútímanum sprettur úr, m.a. út frá alþjóðlegum hugmyndum. Því næst er athugað við hvaða skilyrði myndlist á Íslandi er og hefur verið framleidd, í þeim tilgangi að tengja þróun myndlistargagnrýni á Íslandi við myndlistarsviðið í heild sinni. Tekið er dæmi um átök innan myndlistarsviðsins og hlutverk gagnrýnenda er greint út frá þeirri umfjöllun. Átökin áttu sér stað á tímabilinu frá 1950 til 1970, eða frá því að abstrakt listamennirnir komu fram á sjónarsviðið og þar til hugmyndafræðilega listin var kynnt til sögunnar með SÚM hópnum. Rakin er þróun myndlistargagnrýni á Íslandi frá byrjun 20. aldar til samtímans. Rannsóknin sjálf byggist á spurningakönnun, viðtölum og vettvangsrannsóknum til þess að öðlast meiri yfirsýn yfir stöðuna og viðhorfin til myndlistargagnrýni. Greining gagnanna byggist á að fá heildstætt viðhorf til hlutverks gagnrýnenda og í því samhengi viðhorf til fjölmiðla, frama listamanna, listaverkamarkaðarins, ástæður og afleiðingar hverfandi myndlistargagnrýni. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mikil þörf sé á myndlistarumræðu á íslandi. Íslenska myndlistarsviðið hefur þróast í átt að alþjóðlegum viðmiðum um markaðsvæðingu myndlistar. Svo virðist sem mikill skortur sé á myndlistargagnrýnendum á Íslandi. Að auki benda niðurstöður á það að þrátt fyrir að þátttakendur rannsóknarinnar séu allir á þeirri skoðun að allt of lítil myndlistargagnrýni sé í íslenskum fjölmiðlum þá virðast þeir vilja fá aukna umfjöllun um sig, en ekki endilega í formi gagnrýni heldur samræðu um hlutverk og gildi listaverksins í samfélaginu.

Samþykkt: 
  • 29.10.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4074


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
gudlaug_jakobsdottir_lokaritgerd_fixed.pdf1.02 MBOpinnRitgerðin öllPDFSkoða/Opna