is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4082

Titill: 
  • Stuðningur við jákvæða hegðun: Beinar áhorfsmælingar á hegðun í 1.-4. bekk í þremur grunnskólum haustið 2008 og vorið 2009
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Andfélagsleg hegðun er eitt megin vandamál sem skólar í dag þurfa að fást við og starfsmenn skólanna finna fyrir úrræðaleysi gagnvart þeim vanda sem þeir standa frammi fyrir. Í þremur grunnskólum í Reykjanesbæ hefur verið ákveðið að innleiða Stuðning við jákvæða hegðun (PBS) og eru eftirfarandi mælingar hluti af rannsókn sem er gerð til þess að kanna áhrif PBS á hegðun nemenda og starfsfólks skólanna. Beinar áhorfsmælingar voru gerðar vorið 2008, haustið 2008 og vorið 2009 í 1.-4. bekk skólanna þriggja. Niðurstöður mælinganna sýndu að breytingar á samskiptum milli starfsmanna og nemenda áttu sér stað innan þeirra skóla þar sem innleiðing kerfisins var hafin og að
    óæskileg hegðun minnkaði í skólunum. Áframhaldandi mælingar munu síðan leiða í ljós hver langtímaáhrif kerfisins eru á þau samskipti sem eiga sér stað innan skólans og á hegðun nemendanna.

Samþykkt: 
  • 2.11.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4082


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Tatiana_fixed.pdf2.45 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna