Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4124
Tilgangur ritgerðarinnar var að skoða fræðilegt gildi bandarískra íþróttakvikmynda í tengslum við hópíþróttir og sigursæl íþróttalið. Leitað var skilgreininga á einkennum slíkra liða og hvað þurfi til að mynda góða liðsheild. Einnig var fræðagrunnur þjálfunar og hópeflis kannaður og hann studdur með vísan í þekkta íslenska þjálfara. Til að afmarka efni voru valdar fjórar íþróttakvikmyndir til rannsóknar og greiningar, þær skoðaðar út frá fræðihugtökum með hliðsjón af gátlista. Rannsóknarspurningin var:
Hvað einkennir sigursæl íþróttalið skv. völdum bandarískum íþróttakvikmyndum?
Aukaspurningar lutu að því hversu raunhæfa mynd kvikmyndirnar gæfu af því hvernig góður árangur næðist á íþróttasviðinu og hversu góð dæmi um sigursæl íþróttalið mætti finna í völdum íslenskum kvikmyndum?
Helstu niðurstöður voru að kvikmyndirnar væru marktækar sem fræðiefni um sigursæl íþróttalið og öfluga liðsheild og þar væri að finna skýrar vísanir í fræðileg hugtök.
Niðurstaða um íslensku kvikmyndirnar var að þær sýndu sigursæl íþróttalið fremur utan vallar en innan.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
RagnarVignir_Einn fyrir alla, allir fyrir einn..pdf | 492.97 kB | Opinn | Einn fyrir... - heildartexti | Skoða/Opna |