is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4144

Titill: 
  • Eru fjölmiðlar fyrir alla? Fjölmiðlanotkun Pólverja á Íslandi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Íslenskt samfélag hefur breyst úr einsleitu þjóðfélagi yfir í þjóðfélag sem nú er af mörgum talið vera orðið fjölmenningarlegt samfélag. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni voru innflytjendur 24.379 í ársbyrjun 2009, eða 7,6% af heildarmannfjölda. Pólverjar eru langfjölmennasti hópur innflytjenda, 11.003 talsins, en með innflytjendum er átt við einstaklinga sem hafa búsetu á Íslandi en eru fæddir erlendis og báðir foreldrar hafa erlendan bakgrunn. Fjölmiðlar gegna mikilvægu hlutverki í aðlögun innflytjenda en rannsóknir á fjölmiðlanotkun þeirra er skammt á veg komin. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna notkun fjölmiðla meðal Pólverja á Íslandi til að komast að raun um hvort þeir noti almennt innlenda fjölmiðla, og þá hvernig, auk samanburðar við fjölmiðla frá upprunalandi. Helstu niðurstöður eru að meirihluti Pólverja, eða 55%, nota reglulega íslenska fjölmiðla. Flestir fylgjast með dagblöðum en fæstir með sjónvarpi. Í íslenskum dagblöðum eru gengis- og veðurfréttir, auglýsingar, myndir og fyrirsagnir mest lesnar en innlendar og erlendar fréttir í pólskum dagblöðum. Mest er horft á fréttir og afþreyingarefni bæði í íslensku og pólsku sjónvarpi en sex af hverjum tíu þátttakendum hafa aðgang að pólsku sjónvarpi. Niðurstöður rannsóknarinnar eru byggðar á svörum 649 Pólverja og endurspegla þátttakendur aldur og búsetu Pólverja búsettra á Íslandi.

Styrktaraðili: 
  • Verkefnið var styrkt af Alþjóðahúsi og Innflytjendaráði.
Samþykkt: 
  • 8.12.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4144


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Eru fjölmiðlar fyrir alla_fixed.pdf722.31 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna