Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/416
Íslenskar barnateikningar á upplýsingaöld hafa ekki fengið verðskuldaða athygli. Þær eru dýrmætir upplýsingagjafar um þroskastig, hugarheim, áhugamál, upplifanir og reynslu einstaklinga, innsýn í samfélagið og umhverfið sem börn lifa og hrærast í. Margt í umhverfi barna hefur breyst á síðastliðnum hundrað árum og myndsköpun barna hefur einnig breyst. Nú, á upplýsingaöld, hafa börn aðgang að sjónvarpi, tölvum og gífurlegu magni af öðru afþreyingarefni. Barnateikningar virðast hafa orðið fyrir áhrifum þessara miðla. Þrátt fyrir þessar breytingar má sjá sameiginlega þætti í barnateikningum áður fyrr og nú.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 15.15 MB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna |