is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4188

Titill: 
  • Fabrizio De André: Hólpnar sálir
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um söngvaskáldið Fabrizio De André. Gerð er grein fyrir lífsskoðunum Fabrizio eins og þær birtast í verkum hans. Lagt er út af greiningu á textum söngvaskáldsins og hún fléttuð inn í umræðu ítalskra blaðamanna, rithöfunda og tónlistargagnrýnenda.
    Fabrizio tilheyrði kynslóð söngvaskálda frá Genúa á Ítalíu sem áttu það sameiginlegt að hafa hleypt nýjum straumum inn í ítalska dægurlagamenningu um og eftir 1960. Hann söng um ýmsar hliðar ítalsks samfélags sem fram að þeim tíma höfðu ekki orðið öðrum tónlistarmönnum að yrkisefni. Hann deildi á vald og misbeitingu þess með því að ljá undirmálsfólki rödd í textum sínum. Ýmsir minnihlutahópar sem áður voru á jaðri samfélagsins urðu þannig sýnilegir og gjaldgengir í orðræðunni.
    Textar Fabrizio höfðu mikil áhrif á ítalskt samfélag, ekki síst fyrir þá sem synda á móti straumnum. Í þeim endurspeglast sú trú að allar manneskjur, fyrir tilstilli sammannlegra þátta, hafi sinn tilvistarrétt, óháð því hlutskipti sem lífið hefur búið þeim.

Samþykkt: 
  • 6.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4188


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lir_fixed.pdf387.49 kBLokaðurHeildartextiPDF