Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4202
Í þessari ritgerð er fjallað um notkun Internetsins í kennslu spænsku sem erlends tungumáls. Sjónum er beint að því að finna það efni sem til er á vefnum sem gæti nýst við kennsluna og skoða hvernig hægt sé að nýta sér það sem þar er að finna við sjálfsnám og kennslu tungumálsins. Ritgerðinni er skipt upp í fjóra kafla þar sem fyrst er fjallað um Tölvustudda tungumálakennslu og sögu hennar, því næst er sjónum beint að kennslu spænsku sem erlends tungumáls á 21. öldinni, þar sem helstu kennsluaðferðir eru rannsakaðar og fjallað er lítillega um færniþættina fjóra, þ.e. hlustun, lestur, talmál og ritun. Í framhaldi er fjallað um þá möguleika sem Internetið hefur upp á að bjóða fyrir nám og kennslu spænsku sem erlends tungumáls og tekin eru fyrir þau hugtök sem gott er að kunna skil á, bent er á efni sem gæti nýst spænskukennurum og rætt um mat og gæðaprófun á ýmsum vefsíðum. Einnig er fjallað um hvernig nota má Internetið til að æfa færniþættina fjóra þar sem bent er á efni sem henta hverjum færniþætti fyrir sig. Að lokum er vefurinn Lingu@net kynntur, vefur fyrir nám og kennslu tungumála. Þar er talað um sögu vefsins og byggingu hans lýst, en einnig er gerð grein fyrir því sem hann hefur upp á að bjóða fyrir tungumálanám, og -kennslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
2_fixed.pdf | 676.65 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |