Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4220
Örnefni eru menningarminjar. Þau eru tenging okkar við fortíðina. Í þeim birtist sýn af lífi og störfum fólks fyrri alda og sýn þess á oft harðbýla, en líka gjöfula náttúru. Þau voru vegvísar í veglausu landi og eru það að hluta til enn, þrátt fyrir góða vegi. Í huga ferðamannsins mynda þau e.k. kort af umhverfinu. Fyrrum voru örnefnin í daglegri notkun og nauðsynlegt var að kunna skil á þeim. Meðan svo var barst örnefnaþekkingin milli kynslóða í gegnum hin daglegu störf. Með minnkandi mikilvægi er hætta á að örnefnin falli í gleymsku þrátt fyrir viðleitni til að skrá þau því að staðfræðiþekkingin, þ.e. hvar örnefnin voru staðsett, hverfur einnig með tímanum. Skráning örnefna í landupplýsinga-kerfi opnar marga möguleika varðandi þau. Með hnitun þeirra á loftmyndir er mögulegt að komast sem næst réttri staðsetningu þeirra og þannig er hægt að varðveita í einu bæði örnefnin og staðfræðiþekkinguna. Einnig opnast fjölmargir möguleikar í vinnslu og birtingu örnefnanna m.a. með því að flokka þau eftir uppruna. Varðveisla menningarminja er dýr og finnst sumum tilgangslítið að varðveita hluti sem engin not eru fyrir. Þessari rannsókn er ætlað að athuga hvernig hægt sé að nota landupplýsingakerfi til að forða örnefnum frá gleymsku, með því að koma þeim í not. Á þann hátt verða þau best varðveitt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Örnefni í Leirársveit.pdf | 1.25 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Beitistaðir. Ari Gíslason, Magnús Eggertsson, Ingvar Hallsteinsson (merkt).pdf | 293.14 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Beitistaði | Skoða/Opna | |
Eystri- og Vestri-Leirárgarðar. Ari Gíslason o.fl. (merkt).pdf | 500.89 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Eystri- og Vestri-Leirárgarða | Skoða/Opna | |
Hávarðsstaðir og Hrauntún. Jón Magnússon, Þorbergur Guðjónsson (merkt).pdf | 417.92 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Hávarsstaði | Skoða/Opna | |
Leirá. Júlíus Bjarnason.pdf | 103.6 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Leirá | Skoða/Opna | |
Lyngholt. Ari Gíslason, Narfi Hallsteinsson, Ingvar Hallsteinsson (merkt).pdf | 273.32 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Lyngholt | Skoða/Opna | |
Lækur. Ari Gíslason, Auðunn Auðunsson, Narfi Hallsteinsson, Ingvar Hallsteinsson (merkt).pdf | 556.24 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Læk | Skoða/Opna | |
Lækur. Svör og aths. Einar Helgason (merkt).pdf | 331.77 kB | Opinn | Athugasemdir við örnefnaskrá fyrir Læk | Skoða/Opna | |
Melkot. Ari Gíslason, Ólafur Daníelsson (merkt).pdf | 355.69 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Melkot | Skoða/Opna | |
Neðra-Skarð og Skarðskot. Ari Gíslason, Leifur Þjóðbjörnsson, Ólafur Daníelsson (merkt).pdf | 485.45 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Neðra-Skarð | Skoða/Opna | |
Steinsholt. Ari Gíslason, Ólafur Daníelsson (merkt).pdf | 287.01 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Steinsholt | Skoða/Opna | |
Vogatunga. Ari Gíslason, Böðvar Guðjónsson (merkt).pdf | 308.86 kB | Opinn | Örnefnaskrá fyrir Vogatungu | Skoða/Opna | |
Hávarðsstaðir_allt150dpi.jpg | 1.64 MB | Opinn | Örnefnakort af Hávarsstöðum | JPG | Skoða/Opna |
Hávarðsstaðir_LA150dpi.jpg | 1.62 MB | Opinn | Hávarsstaðir; landslagsörnefni | JPG | Skoða/Opna |
Hávarðsstaðir_NA_SA.jpg | 1.59 MB | Opinn | Hávarsstaðir; náttúru- og söguörnefni | JPG | Skoða/Opna |
Hávarðsstaðir_ST150dpi.jpg | 1.61 MB | Opinn | Hávarsstaðir; starfstengd örnefni | JPG | Skoða/Opna |
Hávarsstaðir_flákar150dpi.jpg | 1.66 MB | Opinn | Hávarsstaðir; flákaskráning örnefna | JPG | Skoða/Opna |
Leirárg_sameiginl.jpg | 844.62 kB | Opinn | Sameiginlegt land Eystri- og Vestri-Leirárgarða | JPG | Skoða/Opna |
Neðra Skarð_allt150dpi.jpg | 1.43 MB | Opinn | Örnefni á Neðra-Skarði | JPG | Skoða/Opna |
Neðra Skarð_LA150dpi.jpg | 1.41 MB | Opinn | Neðra-Skarð; landslagsörnefni | JPG | Skoða/Opna |
Neðra Skarð_SA_NÁ150dpi.jpg | 1.39 MB | Opinn | Neðra-Skarð; náttúru- og söguörnefni | JPG | Skoða/Opna |
Neðra Skarð_ST150dpi.jpg | 1.39 MB | Opinn | Neðra-Skarð; starfstengd örnefni | JPG | Skoða/Opna |
Neðra Skarð-flákar150dpi.jpg | 1.51 MB | Opinn | Neðra-Skarð; flákaskráning örnefna | JPG | Skoða/Opna |