is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4252

Titill: 
  • Áhrif menntunar á atvinnuleysi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í kjölfar bankahrunsins í október 2008 og fram á árið 2009 jókst atvinnuleysi gríðarlega á Íslandi eftir að hafa verið tiltölulega stöðugt árin á undan. Í því samhengi var rannsakað hvort menntun hafi haft raunveruleg og marktæk áhrif á atvinnuleysislíkur þegar illa áraði efnahagslega. Velt var upp spurningum um hvort aukin menntun hafi jákvæð áhrif á atvinnuleysislíkur þegar hagsveifluatvinnuleysi á sér stað. Jafnframt hvort þeir sem frekari menntun höfðu ættu auðveldara með að laga sig að breyttum aðstæðum. Þar að auki var spurt hvort menntun skipti raunverulega sköpum og þá jafnvel eftir því hvert eðli hennar er.
    Litið var á gögn frá Hagstofu Íslands og Vinnumálastofnun en helstu niðurstöður voru
    þær að aukin menntun dregur töluvert úr líkum á atvinnuleysi þegar djúpar hagsveiflur
    eiga sér stað. Háskólamenntaðir eru því í minnstri hættu á atvinnuleysi þegar
    atvinnuleysi eykst mikið en þegar betur árar er ekki mikill munur milli hópa.
    Háskólamenntun fylgir atvinnuleysisþróun mismikið og fer það eftir eðli starfa hvernig sveiflurnar eru en minnkar hún þó alltaf líkur á atvinnuleysi. Grunnskólamenntaðir eru almennt í mestri hættu á atvinnuleysi og þegar efnahagsástand versnar eykst atvinnuleysi þeirra hraðar en hjá meira menntuðum. Mikilvægi menntunar er því mjög greinileg og ætti að hvetja fólk áfram til að auka við mannauð sinn.

Samþykkt: 
  • 11.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4252


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Harpa_fixed.pdf738.6 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna