Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4257
Frá árinu 1990 hafa 679 hælisleitendur komið til landsins, en aðstæður þeirra og reynsla af því að sækja um hæli hérlendis hafa ekki verið rannsakaðar. Ritgerð þessi byggist á eigindlegri rannsókn á aðstæðum hælisleitenda á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að auka þekkingu á málefnum hælisleitenda á Íslandi og að varpa ljósi á aðstæður þeirra hérlendis. Í rannsókn þessari er gerð grein fyrir hlutverki félagsráðgjafa og annarra fagaðila í starfi með hælisleitendum og gagnlegum nálgunum sem þeir geta nýtt á sviði fjölmenningar. Gagna var aflað með eigindlegum rannsóknaraðferðum, m.a. voru tekin voru viðtöl við sex einstaklinga sem hafa upplifað málsmeðferð hælisumsókna hérlendis auk fjögurra starfsmanna sem starfa á þessu sviði en hælisleitendur fá ýmsa þjónustu frá Reykjanesbæ, Útlendingastofnun og Rauða krossi Íslands. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að viðmælendur höfðu mismunandi skoðanir á þjónustunni, bæði var rætt um jákvæða og neikvæða þætti, og komu fram ýmsar tillögur um bætta þjónustu. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu einnig í ljós, að þeir hælisleitendur sem tekin voru viðtöl við fannst erfitt að búa við aðgerðaleysi á meðan þeir voru að bíða úrlausn mála sinna. Þeir upplifðu sig einnig félagslega einangraða á gistiheimilinu Fit, þar sem þeir dvelja skv. samningi Útlendingastofnunar við Reykjanesbæ. Nokkrir viðmælendur töldu erfitt að hefja aðlögun að íslensku samfélagi á meðan þeir biðu úrlausnar á hælisumsókn sinni, þar sem mikil óvissa væri um framtíð þeirra.
Lykilorð: hælisleitendur, aðstæður, þjónusta, framtíðarsýn, félagsráðgjöf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
jan_fixed.pdf | 1.43 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |