is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4266

Titill: 
  • Endurhleðslunetkerfi rafbifreiða á Íslandi. Athugun á hagkvæmni fjárfestingar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi skoðar fýsileika þess að setja upp endurhleðslunet fyrir rafbifreiðar á Íslandi. Í dag hefur bandarískt fyrirtæki að nafni Better Place sett fram viðskiptahugmynd að slíku kerfi en meginmarkmið þessa verkefnis er að líta hlutlaust á þá viðskiptahugmynd og meta hvort hún sé hagkvæm sem fjárfesting hér á landi. Einnig var lagt sérstakt mat á helstu þætti sem koma að hugmyndinni og vert var að huga að. Verkefnið krafðist viðamikillar upplýsingaöflunar en sökum þess að um svo nýja tækni er að ræða eru sumar tölur aðeins áætlanir og ber því að varast sannleiksgildi þeirra.
    Helstu niðurstöður verkefnisins voru þær að miðað við núverandi efnahagsástand og tæknistig rafhlaðna er fjárfestingin ekki hagkvæm hér á landi. Of mikill kostnaður rafhlaðna ásamt veikingu krónunar gerir það að verkum að hugmyndin stendur aldrei undir sjálfri sér við óbreyttar aðstæður.
    Aðrar niðurstöður voru þær að hagsmunir þjóðarinnar af því að auka sjálfstæði sitt í orkumálum eru óneitanlegar en nægja þó ekki til að að réttlæta óhagkvæmni fjárfestingarinnar. Aukning sjálfbærrar hreinnar orku hér á landi skapar mörg tækifæri sem vert er að skoða frekar en ljóst er að ekki er hægt að ná þeim tækifærum fram með viðfangsefni verkefnisins.

Samþykkt: 
  • 12.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4266


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
slandi_fixed.pdf981.44 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna