Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/427
Markmið ritgerðarinnar var að skoða og kynna kennsluaðferðir í kennslu erlendra tungumála og þá sér í lagi dönskukennslu. Sendur var út spurningalisti til þriggja starfandi dönskukennara á höfuðborgarsvæðinu og spurt út í kennsluhætti þeirra. Rannsóknin var gerð með tilliti til helstu aðferða í tungumálakennslu, sem eru málfræði- og þýðingaraðferðin, beina aðferðin, hlustunar- og talaðferðin og tjáskiptaaðferðin. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar er að kennarar eru að nýta sér margt annað efni í kennslu en einungis námsbækurnar og að tjáskiptaaðferðin hefur verið að ryðja sér til rúms að verulegu leyti í tungumálakennslu á meðan þýðingar –og málfræðiaðferðin hefur minnkað tölvuert en er samt sem áður notuð í einhverjum mæli.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 320.17 kB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna | |
Fylgiskjöl.pdf | 87.14 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna |