is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4281

Titill: 
  • Fjármálageirinn. Kenningar og kreppur
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Með hruni bankanna í októbermánuði 2008 breyttust aðstæður í íslensku viðskipta- efnahags- og einkalífi á einni svipstundu. Öll þjóðin var agndofa og mikil reiði blossaði upp á meðal almennings, þar sem margir hverjir stóðu skyndilega uppi með langan skuldahala í farteskinu. Breyttist Ísland frá því að vera ein ríkasta þjóð heims í það að vera eins sú allra skuldugasta.Markmið ritgerðarinnar er að athuga hversu vel kenningar um fjármálakreppur og orsakir þeirra eiga við um íslenska efnahagshrunið. Rannsóknarspurningarnar eru eftirfarandi: Hvað einkennir fjármálageirann og hverjir eru helstu áhættuþættir hans? Hvað hafa rannsóknir á fjármálageiranum og samkeppnishæfni hans lagt af mörkum? Hefur þróun íslenska fjármálageirans verið hagkvæm? Hafa kenningar um fjármálageira gott forspárgildi yfir íslenska efnahagshrunið? Borin verða saman fræðin við núverandi raunveruleika í íslensku efnahagslífi, í þeim tilgangi að sjá hversu vel þær ná utan um þá þróun sem leitt hefur til núverandi fjármálakrísu. Verður til þess framkvæmd svokölluð skrifborðskönnun þar sem safnað verður saman fyrirliggjandi gögnum. Niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að um 87% þeirra kenninga sem skoðaðar voru samræmdust vel við íslenskar aðstæður í fjármálageiranum. Þær vísbendingar sem kenningarnar gefa til kynna hefðu vel getað varpað ljósi á þær hættur sem til staðar voru í íslensku hagkerfi. Nauðsynlegt er því að hafa augun ávallt opin í framtíðinni og geta kenningar þessar verið góð verkfæri til að bera kennsl á vísbendingar um efnahagsörðugleika.

Samþykkt: 
  • 13.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4281


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
pd_fixed.pdf1.33 MBLokaðurHeildartextiPDF