is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4286

Titill: 
  • Áhrif inngöngu í Evrópusambandið á atvinnuleysi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort innganga í Evrópusambandið hafi áhrif á atvinnuleysi nýrra aðildarríkja og hvort hugsanlega sé hægt að skýra breytingu á atvinnuleysi nýju aðildaríkjanna með öðrum stofnanabundnum áhrifavöldum (e. institutions). Gagna er aflað fyrir öll ný aðildarríki ESB, frá og með árinu 1986 til 2009, hjá Eurostat, ILO og OECD. Á tímabilinu hafa 17 ríki gengið í sambandið, af þeim 27 sem í dag mynda ESB. Á timabilinu er ESB stækkað fjórum sinnum, árin 1986, 1995, 2004 og 2007. Til grundvallar breytingu á atvinnuleysi er annarsvegar miðað við meðaltal 10 ársfjórðunga fyrir ársfjórðunginn sem inngangan átti sér stað og hinsvegar meðaltal 10 ársfjórðunga eftir. Mismunur mismuna er reiknaður á milli inngönguríkjanna og ýmissa viðmiðunarríkja, sem bæði eru hluti af sambandinu og fyrir utan það. Fyrir viðmiðunarríkin er reiknað vegið meðaltal atvinnuleysis út frá fjölda á vinnumarkaði. Í kjölfarið er kannað hvort aðhvarf til meðaltals (e. regression toward the mean) sé í gangi á atvinnuleysi nýju aðildarríkjanna. Stofnanabundnu áhrifavaldarnir sem eru skoðaðir eru annarsvegar verðbólga og hinsvegar hagvöxtur. Niðurstöður mismunur mismuna benda greinilega til þess að innganga í ESB hafi lítil áhrif á atvinnuleysi. Það virðist hinsvegar ákveðið aðhvarf til meðaltas í gangi. Í tilfellum 13 af 17 ríkjum dregur úr mun atvinnuleysis inngönguríkjanna og viðmiðunarlandanna. Verðbólga virðist ekki hafa nein áhrif á atvinnuleysi á viðmiðunartímabilinu. Hagvöxtur á viðmiðunartímabilinu virðist hinsvegar hafa einhver áhrif á atvinnuleysi, niðurstöðurnar benda til þess að fyrir hvert prósentustig hagvaxtar geti ríki vænst 0,66 prósentustigs lækkunar á atvinnuleysi m.v. mismunur mismuna. Engu að síður jókst atvinnuleysi hjá 8 af 17 þjóðum m.v. mismunur mismuna þrátt fyrir hagvöxt á tímabilinu.

Samþykkt: 
  • 13.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4286


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ahrif_inngongu_i_Evropusambandid_a_atvinnuleysi_fixed.pdf906.55 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna