is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4294

Titill: 
  • Einhverfir einstaklingar verðmæt auðlind í hugbúnaðarprófunum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknarefni ritgerðarinnar er Specialisterne í Danmörku. Fyrirtækið keppir á markaði og hefur síðastliðin tvö ár skilað hagnaði. Sérstaða fyrirtækisins felst í
    hugmyndafræðinni sem það byggir á og mannauðnum sem það hefur yfir að ráða.
    Specialisterne hefur vakið mikla athygli í Danmörku og víðar um lönd en
    stofnandinn, Thorkil Sonne, hefur verið iðinn við að kynna fyrirtækið á
    heimaslóðum sem og erlendis. Thorkil er frumkvöðull og gat ekki nýtt sér reynslu
    annarra við uppbyggingu þess. Specialisterne er einstakt fyrirtæki fyrir þær sakir
    að flestir starfsmennirnir eru greindir einhverfir. Thorkil nýtir styrkleika þessa
    einstaklinga til að ná forskoti á markaði.
    Aðferðafræði rannsóknarinnar er raundæmisrannsókn. Fyrirtækið er skoðað út frá því samhengi sem það starfar í. Helstu niðurstöður greiningarinnar eru á þá leið að
    þrátt fyrir að rekstrarumhverfi íslenskra skipulagsheilda sé afar erfitt um þessar
    mundir þá er ýmislegt sem styður við stofnun Íslenskra sérfræðinga í anda
    Specialisterne. Sú stoðþjónusta sem hið opinbera býður upp á er til þess fallin að
    styðja við starfsemina og vinnustaðasamningar Tryggingastofnunar ríkisins ættu einnig að greiða fyrir samstarfi Íslensku sérfræðinganna og upplýsinga- og tæknigeirans. Íslensk lög og reglugerðir styðja einnig við starfsemina.
    Skipulagsheildir innan upplýsinga- og tækniiðnaðarins hafa svo og lýst yfir áhuga
    á samstarfi.

Samþykkt: 
  • 13.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4294


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
mynum_fixed.pdf2.05 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
meistarprofsritgerdinni_fixed.pdf22.39 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna