is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4333

Titill: 
  • Maður getur ekki gert þetta allt einn: samstarf sérhæfðrar fardeildar og skóla í hverfi fjögur
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar ritgerðar er rannsókn á samstarfi sérhæfðrar fardeildar og grunnskólanna í Grafarvogi og á Kjalarnesi. Fardeildin er rekin í samstarfi grunnskóla hverfisins og veitir sérdeildarþjónustu sem byggir á því að unnið er með börn í heimaskóla þeirra í stað þess að vista þau í sérdeild. Ráðgjafar deildarinnar hafa starfsaðstöðu í einum skóla hverfisins en þegar unnið er í málum tiltekinna nemenda vinnur ráðgjafi í heimaskóla þeirra. Markmið með starfi deildarinnar er að bæta hegðun, líðan og samskipti nemenda og miðla þekkingu og þróa árangursrík vinnubrögð í skóla. Í flestum tilfellum eru skjólstæðingarnir nemendur með alvarlegan atferlisvanda og/eða geðraskanir.
    Rannsóknin var eigindleg tilviksrannsókn sem fór fram skólaárið 2008-2009. Gögnum var safnað með viðtölum við rýnihópa og einstaklinga og með því að skoða skjöl og gögn sem tengjast fardeild.
    Niðurstöður rannsóknar benda til þess viðhorf kennara til samstarfs og ráðgjafar fardeildar séu almennt jákvæð. Samstarfið getur verið tækifæri til þekkingarsköpunar og starfsþróunar. Það er mitt mat að styðja eigi við áframhaldandi þróun fardeildar og að þörf sé á að starf hennar sé metið á kerfisbundinn hátt.
    Lykilorð: Þekkingarsköpun, ráðgjöf.

Samþykkt: 
  • 19.1.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/4333


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ardis_fixed.pdf660.09 kBLokaðurHeildartextiPDF