Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4362
Meginviðfangsefni þessa verkefnis eru stefnur og stefnumótun íslenska Forsætisráðuneytisins og Framkvæmdastjórnar ESB á sviði málefna upplýsinga- og þekkingarsamfélagsins með hliðsjón af hnattvæðingu, efnahagslífi, menningu og menntun. Framtíðarþróun upplýsinga- og þekkingarsamfélagsins er hluti af undirstöðuatriðum evrópsks efnahagslífs en verkefninu sem hér verður lýst felur fyrst og fremst í sér greiningu á núverandi stefnu Framkvæmdastjórnar ESB sem birtist í i2010 og stefnu Forsætisráðuneytisins á Íslandi sem gildir lengst til 2012. Jafnframt mun í ritgerðinni verða dregin upp mynd af evrópsku upplýsinga- og þekkingarsamfélagi og leitast við greina hversu mikið er sameiginlegt í stefnum ESB og í stefnum íslenskra stjórnvalda
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
bergljot_fixed.pdf | 1.15 MB | Opinn | Heildar texti | Skoða/Opna |